Upplýsingar um útlendingamál
Frumkvæðismál (1512119)
Allsherjar- og menntamálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
19.12.2015 | 29. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Upplýsingar um útlendingamál Samþykkt var einhljóða skýrsla nefndarinnar um réttarstöðu hælisleitanda, málshraða, skilvirkni og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, skv. 1. mgr. 26. gr laga um þingsköp Alþingis. |
19.12.2015 | 28. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Upplýsingar um útlendingamál Á fund nefndarinnar komu Erna Kristín Blöndal frá innanríkisráðuneytinu og Helgi Valberg Jenson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu (símafundur). Fóru þau yfir málefni útlendinga hér á landi og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
17.12.2015 | 26. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Upplýsingar um útlendingamál Á fund nefndarinnar komu Hermann Sæmundsson og Erna Kristín Blöndal frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir stöðu mála í útlendingamálum og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
15.12.2015 | 25. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Upplýsingar um útlendingamál Á fund nefndarinnar komu Hjörtur Bragi Sveinsson frá kærunefnd útlendingamála, Kristín María Gunnarsdóttir og Vera Dögg Gunnarsdóttir frá Útlendingastofnun og Atli Viðar Thorstensen, Gunnar Narfi Gunnarsson, Guðríður Lára Þrastardóttir og Kristjana Fenger frá Rauða krossi Íslands. Fóru þau yfir stöðu útlendingamála hér á landi og svöruðu spurningum nefndarmanna. |